Ræktunarbú Skagafjarðar 2010

raektunarbu1

Við vorum svo lánsöm að hljóta titilinn Ræktunarbú Skagafjarðar 2010,
annað árið í röð

 

"Afreksverðlaun HSS
Ófeigsbikarinn - hlýtur hrossaræktarbú ársins. Það voru Hafsteinsstaðir
sem voru hlutskarpastir. Er það ekki síst athyglisverður árangur fyrir
þær sakir að Hafsteinsstaðir unnu einnig þennan titil á síðasta ári og þá
á grunni annarra hrossa en í ár en sömu hrossin geta ekki talið til stiga
tvisvar hjá því búi sem vinnur. Í ár skipti sköpum glæsilegur árangur
Hafsteinsstaðahrossanna á Íslandsmóti en 6 hross frá búinu kepptu þar til
úrslita og þar á meðal varð Drífa Íslandsmeistari." (Tekið af fréttavef HSS)
 

Fréttir af Hróarskeldu

hroarskelda2Í haust fór Hróarskelda okkar í fósturvísaflutninga

til Guðmars á Sandhólaferju og eigum við nú von

á tveimur folöldum næsta sumar undan henni og Loka frá Selfossi.

 

Hróarskelda er nú í eigu hjónanna í Þjóðólfshaga I,

Sigurðar Sigurðarsonar og Sigríðar Arndísar Þórðardóttur

 

Íslandsmót 2010

Seyðir og Lúkas frá Hafsteinsstöðum voru báðir í A-úrslitum á Íslandsmótinu í sumar 2010.

Knapi á Lúkasi er Anna Valdimarsdóttir og knapi á Seyði er Þórarinn Eymundsson

lukas_2010. seydir_2010.
 

Félagsmót Léttfeta 2010

Félagsmót Léttfeta var haldið 21. ágúst 2010.

Skapti og Hróarskelda frá Hafsteinsstöðum unnu B-flokkinn með 8,68 og í þriðja sæti varð Steingrímur

frá Hafsteinsstöðum með varaknapann Egil Bjarnason. Hróarskelda var kosin glæsilegasti

hestur mótsins.

Í A-flokki vann Skapti líka á Dofra frá Úlfsstöðum með 8,50 og Kolbeinn frá Hafsteinsstöðum

og varaknapinn Egill Bjarnason lenti í 4 sæti.

A-flokkur1 B-flokkur1
A-flokkur Skapti lengst til vinstri á Dofra og Egill fjórði frá vinstri á Kolbeini B-flokkur Skapti lengst til hægri á Hróarskeldu og Egill þriðji frá hægri á Steingrími
 

Bræðurnir Bláskjár og Fannar

Hér fyrir neðan má sjá þá bræður IS2005157340 Bláskjá og

IS2008157344 Fannar en þeir eru báðir undan Dimmblá frá Hafsteinsstöðum.

Bláskjár er undan Sæ frá Bakkakoti en Fannar undan Kjarna frá Þjóðólfshaga I

blaskjar_tolt1 fannar2
 
Gestir á síðunni
Það er 1 gestur á síðunni núna